Lög Stjórnendafélags Vestfjarða
1.Kafli
1.grein
1.1. Félagið heitir Stjórnendafélag Vestfjarða og er félag stjórnenda og annarra sem gegna ábyrgðarstöðum á félagssvæðinu, sem eru Vesfirðirnir í heild sinni.
1.2. Félagið starfar innan vébanda Sambands stjórnendafélaga (skammstafað S.T.F) og lýtur lögum þess og samþykktum.
1.3. Varnarþing félagsins er á Vestfirðum . Heimili félagsins og staðsetning skrifstofa skal ákveðin af stjórn félagsins. Kennitala félagsins er 451275-3809.
2.grein.
Tilgangur félagsins er:
a. Að vera skipulagsbundið stéttarfélag verkstjóra / stjórnenda á félagssvæðinu, án stjórnmálaafskipta.
b. Að gæta hagsmuna félagsmanna varðandi atvinnuskilyrði, launakjör og önnur hagsmunamál og koma í veg fyrir að réttur þeirra sé fyrir borð borinn.
c. Að vinna að aukinni menntun og verkhæfni og framförum meðal félagsmanna m.a. með því að styrkja félagsmenn til aukinnar menntunar og stuðla að því að auka möguleika félagsmanna á að nýta sér það námsefni sem í boði er.
d. Að vinna að orlofsmálum félagsmanna með það að markmiði að auka þá möguleika sem félagsmenn hafa á að njóta orlofs.
e. Að aðstoða félagsmenn í atvinnuleit og í veikindum.
f. Að styrkja félagsmenn sína til líkamsræktar og tómstunda.
3.grein
Félagsmenn geta þeir einir orðið sem starfa sem verkstjórar / stjórnendur eða gegna öðrum ábyrgðarstörfum.
4.grein.
Inntökubeiðni í félagið er á sérstöku eyðublaði, sem unnt er að skila með rafrænum hætti. Inntökubeiðnir taka gildi þegar fyrsta greiðsla félagsgjalds hefur borist.
5.grein.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjald skal vera prósenta af launum sem aðalfundur ákveður hverju sinni.
Félagsgjald er ekki greitt af eftirlaunum. Þá skal aðalfundi heimilt að ákveða lægri félagsgjöld eða gjaldfrelsi í tengslum við nýtingu réttinda úr sjúkrasjóði, töku örorkulífeyris, atvinnuleysis eða annarra sambærilegra aðstæðna.
6.grein.
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg. Úrsögn raskar ekki stöðu krafna félagsins á hendur félagsmanni, ef einhverjar eru.
Standi félagsmaður í skuld við félagið í 3 mánuði eða meira og geti ekki sannað að félagsgjöld hafi verið dregin af launum hans eða sýnt fram á greiðslu til félagsins fellur félagsaðild hans niður.
2.Kafli
Um réttindi félagsmanna, skyldur, réttindamissi og brottvikningu.
7. grein.
Réttindi félagsmanna eru málfrelsi, tillöguréttur og atkvæðisréttur. Jafnframt eiga menn rétt á að njóta þeirra kjara sem félagið semur um og þeirra styrkja og aðstoðar sem kveðið er á um í lögum þessum.
8.grein.
Ef ágreiningur verður á milli atvinnurekenda og félagsmanns um atvinnumál, getur viðkomandi félagsmaður lagt málið fyrir stjórn félagsins. Skal stjórn eða sáttanefnd þá þegar athuga málið og reyna málamiðlun og fylgja eftir hagsmunum félagsmanns eins og við á. Ef lausn næst ekki skal stjórnin vísa því til S.T.F. til úrlausnar.
9. grein.
Skyldur félagsmanna eru:
a. Að hlýða fyrirmælum félagsins, lögum þess, reglugerðum og samningum í öllum greinum.
b. Að gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið.
c. Að fylgjast með að áskilin gjöld séu greidd til félagsins.
d. Að halda öllu sem gerist á fundum félagsins stranglega innan vébanda þess, ef stjórn æskir þess.
10. grein.
Falli grunur á félagsmann um að hann hafi gerst sekur í að vinna gegn stefnu félagsins, samþykktum eða samningum skal stjórn félagsins, eða nefnd, sem til þess er skipuð rannsaka málið eins og kostur er.
Verði sekt hans sönnuð skal stjórnin fjalla um málið og ef ástæða er til gefa honum skriflega áminningu. Ef áminningin ber ekki árangur skal stjórn leggja málið fyrir félagsfund, sem tekur ákvörðun um réttindamissi eða brottvikningu úr félaginu. Einfaldur meirihluti á félagsfundi ræður úrslitum í málinu. Tilkynning um brottvikningu skal vera skrifleg. Heimilt er að taka viðkomandi í félagið aftur ef hann hefur bætt fyrir brot sín að mati stjórnar.
11. grein.
Félagsmönnum er óheimilt að ganga inn á verksvið hvers annars á einn eða annan hátt og ekki má bjóða hvorn annan frá verki með lægri launaboðum.
12. grein
Félagsmenn eru algjörlega hlutlausir í öllum kaupdeilum milli vinnuveitenda og undirmanna sinna, hvort sem um er að ræða verkföll eða verkbönn.
En skylt er hverjum félagsmanni að gæta þeirra verðmæta sem hann hefur umsjón með og verja þau skemmdum eftir eigin getu, ákvæði þessarar greinar skerða þó ekki verkfallsrétt félagsmanna sjálfra.
3. Kafli
Um stjórn félagsins og störf hennar.
13. grein
Aðalstjórn félagsins er skipuð 8 mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og 4 meðstjórnendum.
Skulu þeir kosnir á aðalfundi með skriflegri kosningu ef óskað er, hver fyrir sig. Kjörtímabil aðalstjórnar er tvö ár þannig að annað árið er kosið um formann, ritara og tvo meðstjórnendur, en hitt um gjaldkera og varaformann og tvo meðstjórnendur.
Stjórn félagsins skal auglýsa eftir framboðum til stjórnar minnst 30 dögum fyrir aðalfund. Fyrir þann tíma skulu stjórnamenn sem kjörtímabil er að renna út hjá upplýsa ef þeir sækjast ekki eftir endurkjöri. Framboðum skal skilað minnst 15 dögum fyrir aðalfund til stjórnar(skrifstofu).
Þegar framboðsfrestur er liðin og ef ekkert framboð hefur borist hefur stjórn heimild til að finna frambjóðendur og kynna þá á aðalfundi.
Stjórn er heimilt að leggja fram á aðalfundi uppástungur um fulltrúa í öðrum trúnaðarstörfum sem kosið er um á aðalfundi.
14. grein.
Formaður félagsins er forseti stjórnar.
Hann hefur eftirlit með því að þeir sem kosnir hafa verið til trúnaðarstarfa fyrir félagið gegni skyldum sínum við það. Formaður boðar til funda og stýrir þeim.
15. grein.
Ritari heldur gjörðabók og skrásetur í hana stuttorðar og hlutlausar skýrslur um það sem fer fram á fundum félagsins og undirritar hana ásamt formanni.
16. grein.
Gjaldkeri heldur félagaskrá, hann hefur eftirlit með að öll áskilin gjöld til félagsins séu innheimt og samþykkir útgjöld félagsins. Hann sér um að ársreikningar séu gerðir og skal afhenda þá skoðunarmönnum félagsins minnst tveimur vikum fyrir aðalfund.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
17. grein.
Stjórnarfundi skal halda svo oft sem ástæða þykir til. Stjórnarfundi má halda rafrænt.
Formaður skal ávallt leggja fram ákveðna dagskrá og málin rædd og afgreidd skipulega samkvæmt henni.
Stjórnarfundur er lögmætur ef boðað hefur verið til hans með réttum hætti og meirihluti stjórnar mætir til fundarins.
Nú standa atkvæði á jöfnu í stjórn, ræður þá atkvæði formanns.
Skylt er stjórninni að leggja öll mikilvæg mál fyrir félagsfund, svo sem mál er varða samninga við önnur félög eða einstaklinga,þýðingarmikil atvinnumál og verulegar fjárfestingar sem nema 5% af heildareignum viðkomandi félagssjóðs.
4. kafli
Um fundarhöld o.fl.
18. grein
Aðalfund skal halda fyrir lok apríl ár hvert. Hann er löglegur ef boðað er til hans skriflega/rafrænt eða með öðrum sannanlegum hætti með 14 daga fyrirvara. Takist ekki að ljúka aðalfundarstörfum skal boða til framhaldsaðalfundar á sama hátt og fyrr segir.
19. grein
Á aðalfundi skal kjósa fundastjóra úr hópi fundarmanna, hann stýrir umræðum og kosningum samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá, hann undirritar fundagerðir ásamt ritara og formanni. Almenn fundarsköp gilda á fundum félagsins nema annað verði ákveðið með reglugerð.
Aðalfundi og félagsfundi skal halda með þeim hætti að fundarmenn mæti á tiltekinn stað á félagssvæðum hvers af eldri félögunum og fundurinn verði framkvæmdur rafrænt. Þar að auki geta fundir verið í almennu streymi til félagsmanna en þeir eru þá einungis áheyrnarfulltrúar.
20. grein
Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi
1. Skýrsla stjórnar og fastanefnda félagsins
2. Reikningar félagsins og sjóða þess
3. Ákvörðun um félagsgjald
4. Lagabreytingar
5. Kosning stjórnar
6. Kosning 5 í orlofsnefnd7. Kosning 2ja skoðunarmanna reikninga
8. Kosning stjórnarmanna í stjórn STF
9. Önnur mál
21. grein.
Félagsfundi skal halda svo oft sem stjórninni þykir ástæða til eða þegar minnst 5% félagsmanna æskja þess skriflega og tilgreina fundarefnið. Ber þá stjórninni að boða til fundar innan þriggja vikna frá því að óskin berst.
Sömu reglur gilda um fundarboð félagsfunda og aðalfundar.
5. kafli
Um gjaldheimtu, niðurlagsákvæði o.fl.
22. grein.
Félagsgjöld ber að greiða mánaðarlega. Félagsmönnum ber að fylgjast með því hvort vinnuveitendur þeirra uppfylli skyldu sína í þessu efni.
23. grein.
Tillaga um samruna félagsins eða samband við annað eða önnur félög eða ef slíta á slíku sambandi, þarf sömu meðferð og lagabreytingar.
24. grein.
Ekki er hægt að leysa félagið upp eða leggja starfsemi þess niður ef minnst 20 félagar óska eftir að halda starfsemi þess áfram. Verði félagið hinsvegar lagt niður og starfsemi þess hætt, skal afhenda S.T.F. allar eignir félagsins til varðveislu.
Verði félagið ekki endurreist eða annað stofnað á félagssvæðinu innan fimm ára, renna eignir alfarið til S.T.F. samkvæmt lögum þessum.
25. grein.
Komi upp ágreiningur innan félagsins um túlkun á lögum þessum, er heimilt að leita úrskurðar S.T.F. um málið.
Ekki má breyta þessum lögum, úr þeim fella, né þau auka nema á löglegum aðalfundi félagsins. Lög þessi taka þegar gildi.